Verkefnin okkar — sýnum gæði og fagmennsku
Hjá Esjan verktökum leggjum við metnað okkar í að skila áreiðanlegum og faglegum lausnum í öllum verkefnum. Hér færðu hugmynd um þau verkefni sem við höfum unnið, allt frá þakvinnu og málningu til smíða og múrverks.
Reynsla sem talar
Frá því við hófum starfsemi höfum við byggt upp samstarf við nokkra af stærstu og kröfuhörðustu verkkaupum á íslenska markaðinum, þar á meðal Reita, Verksýn og Landspítalann. Það er sá staðall sem við vinnum eftir í hverju einasta verki, stóru sem smáu, hvort sem um er að ræða þakvinnu, málningu, smíði, múrverk eða heildarendurbætur.

Reitir
Esjan vinnur að jafnaði 10–15 verk á ári fyrir Reiti, eitt stærsta fasteignafélag landsins. Meðal nýlegra verka eru heildarendurbætur á skrifstofuhúsnæði í Kringlunni, þar sem öllum innréttingum var skipt út og rýmið endurnýjað frá grunni.

Verksýn
Samstarfið við Verksýn telur fjölda verkefna á hverju ári — flasningar, múrvinnu, málningarvinnu og annað útiviðhald fjölbýlishúsa. Við höfum skapað framtíðarsamstarf þar sem tímasetningar standast og heildarútkoman er fagleg og vönduð.

Landspítalinn — Blóðbankinn, turninum í Kringlunni, 5. hæð
Heildarendurnýjun á húsnæði Blóðbankans á 5. hæð turnsins í Kringlunni. Esjan sá um öll smíða- og málningarverk: nýja veggi, innréttingar, hurðir og fleira.
Reykjavíkurborg — Húsnæði Barnaverndar
Heildarbreytingar á húsnæði Reykjavíkurborgar í Grímsbæ, þar sem Barnavernd flutti inn á 3. hæð. Esjan sá um alla framkvæmdina — smíða-, málningar- og múrvinnu ásamt frágangi — frá upphafi til loka.
