Verkefnin Okkar – Sýnum Gæði og Fagmennsku
Hjá Esjan Verktökum leggjum við metnað okkar í að skila áreiðanlegum og faglegum lausnum í öllum verkefnum. Hér færðu hugmynd um þau verkefni sem við höfum unnið, allt frá þakvinnu og málningu til smíða og múrverks.
Reynsla sem talar
Frá því við hófum starfsemi höfum við byggt upp samstarf við nokkra af stærstu og kröfuhörðustu verkkaupum á íslenska markaðinum, þar á meðal Reita, Verksýn og Landspítalann. Það er sá staðall sem við vinnum eftir í hverju einasta verki, stóru sem smáu, hvort sem um er að ræða þakvinnu, málningu, smíði, múrverk eða heildarendurbætur.
Reitir — Skrifstofa, Kringlan
Heildarendurbætur á skrifstofuhúsnæði Reita í Kringlunni. Esjan sá um smíða- og málningarvinnu þar sem öllum innréttingum var skipt út og rýmið endurnýjað frá grunni, með hreinum frágangi og ánægðum kúnnum við lokafundinn.
Verksýn — Hátún 10, 10b og 10c
Allt útiviðhald á húsasamstæðunni Hátún 10, 10b og 10c í samstarfi við Verksýn. Esjan tók að sér flasningar, múrvinnu og málningarvinnu. Allar tímasetningar stóðust og heildarútkoman var fagleg og vönduð.
Landspítalinn — Blóðbankinn, Kringlan turninn 5. hæð
Heildarendurnýjun á húsnæði Blóðbankans á 5. hæð turnsins í Kringlunni. Esjan sá um öll smíða- og málningarverk: nýja veggi, innréttingar, hurðir og fleira.
Reykjavíkurborg - Húsnæði Barnaverndar
Heildarbreytingar á húsnæði Reykjavíkurborgar í Grímsbæ, þar sem Barnavernd flutti inn á 3. hæð. Esjan sá um alla framkvæmdina — smíða-, málninga- og múrvinnu ásamt frágangi — frá upphafi til loka.