Esjan Verktakar ehf. var stofnað 1. maí 2023 með einfalda hugsjón: að bjóða viðskiptavinum heildarlausn þar sem allir iðnaðarmenn vinna saman undir einum hatti, í stað þess að ráða og samhæfa marga aðila.
Hjá okkur starfa málarar, smiðir, múrarar og flísarar, allir reynslumiklir iðnaðarmenn á sínu sviði. Með í liði eru húsasmíðameistari, múrarameistari, málarameistari og byggingastjóri, ásamt um tíu starfsmönnum sem hafa unnið með okkur frá byrjun.